Fréttir

Hér eru fréttir frá okkur og um okkur.

Skipstjóri og áhöfn á Barða heiðruð á IceFish sýningunni

Skipstjóri og áhöfn á Barða heiðruð á IceFish sýningunni

Theodór Elvar Haraldsson, skipstjóri á Barða NK-120, hlaut á dögunum verðlaun sem framúrskarandi íslenskur skipstjóri á sjávarútvegs- og fiskeldissýningunni IceFish 2026.

Faxaflóahafnir og Alda í samstarf um öruggari og snjallari hafnir

Faxaflóahafnir og Alda í samstarf um öruggari og snjallari hafnir

Alda Öryggi og Faxaflóahafnir hafa undirritað þjónustu- og þróunarsamning um notkun og aðlögun Öldu fyrir þjónustubáta Faxaflóahafna. Samningurinn styður við áherslur Faxaflóahafna á öruggan og skilvirkan rekstur og þróun snjallra hafna framtíðarinnar.

Alda Safety á IceFish Sjávarútvegssýningunni

Alda Safety á IceFish Sjávarútvegssýningunni

Við í Ölduteyminu hlökkum til að hitta viðskiptavini, samstarfsaðila og alla þá sem láta sig öryggismál sjómanna varða á bás P38 á IceFish í Smáranum/Fífunni í Kópavogi dagana 22.–24. september næstkomandi.

Alda með "Founder's lunch" erindi hjá Startup SuperNova

Alda með "Founder's lunch" erindi hjá Startup SuperNova

Gísli Níls, framkvæmdastjóri og stofnandi Öldu Öryggis, hélt í vikunni s.k. "Founder's lunch" erindi fyrir frumkvöðlahópinn sem er að hefja vegferð sína í Startup SuperNova, viðskiptahraðli KLAK – Icelandic Startups. Í erindinu kynnti hann Ölduna og deildi reynslu Öldu-teymisins af þátttöku í hraðlinum í fyrra.

Agga komin til Færeyja – fyrsta skrefið í alþjóðlegri vegferð

Agga komin til Færeyja – fyrsta skrefið í alþjóðlegri vegferð

Öryggisappið Agga, sem Alda Öryggi þróaði fyrir smábátasjómenn, hefur á skömmum tíma fest sig í sessi sem öflugt verkfæri fyrir íslenska smábátasjómenn. Appið hefur nú verið tekið í notkun í Færeyjum og á einungis 2 vikum hafa um 50% færeyskra smábátasjómanna hafið notkun á appinu.

Reglulegar æfingar skiptu sköpum um borð í Barða

Reglulegar æfingar skiptu sköpum um borð í Barða

Í síðustu viku kom upp eldur í vélarrúmi skips Síldarvinnslunnar Barða NK 120 við Færeyjar. Atvikið vakti mikla athygli enda um alvarlegt neyðartilvik að ræða þar sem skjót viðbrögð og gott skipulag skiptu sköpum í því að ekki fór verr.

Öryggi sjómanna í brennidepli í Færeyjum

Öryggi sjómanna í brennidepli í Færeyjum

Við hjá Öldunni tókum þátt í Atlantic Fair sjávarútvegssýningunni sem haldin var í Færeyjum á dögunum, þar sem við áttum afar góð og gagnleg samtöl við stjórnendur skipa og útgerða, sjómenn og fjölmarga hagsmunaaðila í sjávarútvegi.

Nýr Ásgrímur Halldórsson kominn til Skinney-Þinganes

Nýr Ásgrímur Halldórsson kominn til Skinney-Þinganes

Við hjá Öldunni viljum óska Skinney-Þinganes og áhöfn Ásgríms Halldórssonar SF-250 innilega til hamingju með nýtt og glæsilegt skip, sem sigldi heim til Hafnar í Hornafirði fyrr í mánuðinum.

Agga-appið hluti af öryggisátaki Landsbjargar fyrir strandveiðisjómenn

Agga-appið hluti af öryggisátaki Landsbjargar fyrir strandveiðisjómenn

Alda Öryggi og Slysavarnafélagið Landsbjörg eru nú í samstarfi varðandi kynningu á Öggu-appinu sem er frítt fyrir smábátasjómenn um allt land. Markmið samstarfsins er að auka öryggi smábátasjómanna með einföldum og aðgengilegum lausnum sem styðja við örugga sjósókn.

Aldan verður á Atlantic Fair í Færeyjum

Aldan verður á Atlantic Fair í Færeyjum

Alda Öryggi verður á sjávarútvegssýningunni Atlantic Fair sem fram fer í Færeyjum 19.-21.maí. Sýningin er mikilvægur og spennandi vettvangur sjávarútvegsins í Norður-Atlantshafi þar sem fyrirtæki, útgerðir og fagfólk úr greininni koma saman til að deila reynslu og kynna nýjungar.

Aldan á vel heppnuðu opnu húsi Sjávarklasans

Aldan á vel heppnuðu opnu húsi Sjávarklasans

Alda Öryggi tók þátt í opnu húsi Sjávarklasans sem haldið var í húsnæði klasans við Grandagarð í síðustu viku. Viðburðurinn, sem var hluti af nýsköpunarvikunni, var afar vel sóttur og skapaðist lífleg stemning þar sem fjölbreytt fyrirtæki kynntu starfsemi sína og nýsköpun í sjávarútvegi og tengdum greinum.

Aldan í nýsköpunarvikunni á opna húsi Sjávarklasans

Aldan í nýsköpunarvikunni á opna húsi Sjávarklasans

Við hjá Öldunni hlökkum til að taka þátt í nýsköpunarvikunni, í opnu húsi Sjávarklasans við Grandagarð 16, fimmtudaginn 30. apríl. Viðburðurinn er hluti af dagskrá Iceland Innovation Week og stendur frá kl. 14:00 til 16:30.

Innleiðing Öldu hafin um borð í björgunarskipinu Jóhannesi Briem

Innleiðing Öldu hafin um borð í björgunarskipinu Jóhannesi Briem

Innleiðing Öldu öryggisstjórnunarkerfis er nú hafin á björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og fyrsta skipið sem fær Öldu er Jóhannes Briem, björgunarskipið í Reykjavík. Þar með er hafið það verkefni að taka Ölduna í notkun í öllum björgunarskipum félagsins á næstu misserum.

Norðursigling stígur Ölduna fyrst hvalaskoðunarfyrirtækja - Spennandi áfangi í öryggismálum hvalaskoðunar á Íslandi

Norðursigling stígur Ölduna fyrst hvalaskoðunarfyrirtækja - Spennandi áfangi í öryggismálum hvalaskoðunar á Íslandi

Við hjá Öldunni erum afar stolt af því að Norðursigling er fyrsta hvalaskoðunarfyrirtækið á Íslandi til að innleiða Öldu öryggisstjórnunarkerfið. Þetta markar tímamót í öryggismálum hvalaskoðunar, þar sem við stígum saman mikilvægt skref í að færa þann sama aga, gagnadrifnu nálgun og fagmennsku sem hefur verið þróuð með og notuð af stærstu útgerðum landsins - yfir á farþegaskip í hvalaskoðun.

“Nýsköpunarstyrkir Samgöngustofu eru mikilvægur hvati og gæðastimpill“

“Nýsköpunarstyrkir Samgöngustofu eru mikilvægur hvati og gæðastimpill“

Í Fiskifréttum var nýlega umfjöllun um mikilvægi styrkja frá Samgöngustofu fyrir nýsköpunarfyrirtæki sem vinna að því að efla öryggi á sjó. Þar var viðtal við Gísli Níls, framkvæmdastjóra Öldu Öryggis sem lagði áherslu á að slíkir styrkir séu ekki aðeins mikilvæg fjárhagsleg aðstoð heldur einnig sterkur hvatning og gæðastimpill fyrir nýjar lausnir.

Alda Öryggi valið í „landslið“ sprotafyrirtækja í bláa hagkerfinu

Alda Öryggi valið í „landslið“ sprotafyrirtækja í bláa hagkerfinu

Alda Öryggi hefur nýverið verið valið í „landslið“ sprotafyrirtækja í bláa hagkerfinu af Íslenska sjávarklasanum. Á listanum eru 20 fyrirtæki sem öll eiga það sameiginlegt að vinna að nýstárlegum og mikilvægum lausnum innan haf- og sjávartengdrar starfsemi.

Landsbjörg innleiðir Ölduna í öll björgunarskip sín

Landsbjörg innleiðir Ölduna í öll björgunarskip sín

Alda Öryggi er afar stolt af því að hafa undirritað samning við Slysavarnafélagið Landsbjörg um innleiðingu á Öldu öryggisstjórnunarkerfinu í öll þeirra björgunarskip. Þetta er stór áfangi fyrir okkur og mikil viðurkenning á þeirri vinnu sem lögð hefur verið í þróun og uppbyggingu kerfisins.

Alda notuð af 65% af stærstu útgerðum landsins

Alda notuð af 65% af stærstu útgerðum landsins

Nýlega birtu Fiskifréttir (Viðskiptablaðið) áhugaverða grein um Ölduna þar sem m.a. kemur fram kemur að 65% af stærstu útgerðum landsins hafa nú þegar tekið öryggisstjórnunarkerfið í notkun. Einnig að viðræður séu hafnar við erlendar útgerðir, meðal annars í Færeyjum og Bretlandi, í tengslum við frekari útbreiðslu Öldunnar.

Hafrannsóknastofnun komin með bæði skipin í Ölduna

Hafrannsóknastofnun komin með bæði skipin í Ölduna

Haldin var kynning um Ölduna með áhafnarmeðlimum um borð í Þórunni Þórðardóttur í vikunni og farið yfir virkni Öldu-appsins og kerfisins. Áhöfnin var mjög áhugasöm og spurðu menn mikið út í hin ýmsu mál tengd notkun og virkni Öldunnar. Skemmtilegt er að nýr starfsmaður Öldunnar, Þórunn Harðardóttir, ber einmitt sama nafn og skipið.

Aldan rís á nýju ári með Hafrannsóknastofnun

Aldan rís á nýju ári með Hafrannsóknastofnun

Við hjá Öldunni erum mjög stolt að byrja árið með öflugum nýjum viðskiptavini - Hafrannsóknastofnun. Áður en rannsóknaskipið Árni Friðriksson hélt af stað í loðnuleit nú í byrjun vikunnar var haldin kynning á Öldunni fyrir alla áhafnarmeðlimi. Áhöfnin var mjög spennt fyrir Öldunni og mætti Eggert B. Guðmundsson forstjóri einnig um borð til að kynna sér nýjar áherslur á öryggismálin til sjós með Öldunni.

Samvinna, þakklæti og stolt 2025 – Gleðilegt nýtt ár

Samvinna, þakklæti og stolt 2025 – Gleðilegt nýtt ár

Við í Ölduteyminu óskum öllum gleðilegs árs og hlökkum til spennandi árs með fullt af nýjum ævintýrum þar sem Aldan mun halda áfram að rísa á íslenskum miðum og öðrum hafsvæðum. Við viljum sérstaklega þakka sjómönnum, útgerðum og öðrum samstarfsaðilum í að efla öryggismál sjómanna með nýsköpun og þjónustu Öldunnar.

Öldu-teymið lýkur mentoraþjálfun Startup SuperNova

Öldu-teymið lýkur mentoraþjálfun Startup SuperNova

Í tengslum við viðskiptahraðalinn Startup SuperNova fékk Öldu-teymið aðgang að þremur aðilum frá mentoraþjónustu Klak – Icelandic Startups. Við í Öldunni vorum svo heppin að fá úthlutað frábæru fólki sem við lærðum afar mikið af.

Gísli stjórnar málstofu á Sjávarútvegsráðstefnunni

Gísli stjórnar málstofu á Sjávarútvegsráðstefnunni

Sjávarútvegsráðstefnan 2025 í fer nú fram í Hörpunni og í gær var Gísli Níls, framkvæmdastjóri Öldu Öryggis, málstofustjóri eins viðburðarins þar. Málstofan hafði yfirskriftina Sögur af nýsköpun og fengu gestir að heyra fjögur áhugaverð erindi frá aðilum sem tengjast nýsköpunarheiminum í sjávarútvegi á Íslandi

Áhugavert viðtal á Vísi við Gísla framkvæmdastjóra

Áhugavert viðtal á Vísi við Gísla framkvæmdastjóra

Vísir birti um helgina áhugavert viðtal við framkvæmdastjóra og stofnanda Öldu Öryggis, Gísla Níls Einarsson

Þegar tækifærið flýtur framhjá - hugmyndarík áhöfn á Gullver

Þegar tækifærið flýtur framhjá - hugmyndarík áhöfn á Gullver

Á dögunum gripu hugmyndaríkir skipverjar á Gullver svo sannarlega tækifærið þegar þeir sáu þrjú fiskikör á floti fyrir austan land. Þeir ákváðu að drífa í að gera Maður fyrir borð björgunaræfingu þar sem aðgerðir við að “bjarga körum” eru nokkuð sambærilegar aðgerðum við björgun manns úr sjó.

Frábær reynsla úr Startup SuperNova

Frábær reynsla úr Startup SuperNova

Við í Öldu-teyminu erum ótrúlega stolt og þakklát eftir að hafa lokið viðskiptahraðlinum Startup SuperNova. Þetta hefur verið einstakt tækifæri fyrir okkur að þróa áfram nýsköpun Öldunnar, vaxa sem frumkvöðlar og tengjast frábæru fólki úr íslenska nýsköpunargeiranum.

Kaldvík komið í Öldu-hópinn

Kaldvík komið í Öldu-hópinn

Sjóeldisfyrirtækið Kaldvík skrifaði undir samning fyrr í vikunni á Íslensku Sjávarútvegssýningunni um að innleiða Ölduna á bátum sínum í starfseminni fyrir austan.

Alda Öryggi á Sjávarútvegssýningunni í Laugardalshöll

Alda Öryggi á Sjávarútvegssýningunni í Laugardalshöll

Öldu-teymið verður með bás á Sjávarútvegssýningunni Iceland Fishing Expo sem haldin verður í Laugardalshöll dagana 10.-12. september.

Aldan á stórri frumkvöðlaráðstefnu í Kaupmannahöfn

Aldan á stórri frumkvöðlaráðstefnu í Kaupmannahöfn

Öldu-teymið fór ásamt 7 öðrum teymum úr viðskiptahraðlinum Startup SuperNova og fjölmörgum öðrum Íslendingum úr nýsköpunargeiranum á TechBBQ ráðstefnuna í Kaupmannahöfn í síðustu viku.

Arnarlax og Alda stíga Ölduna

Arnarlax og Alda stíga Ölduna

Í vor hófst þróunarsamstarf við Arnarlax um að um að aðlaga og þróa Öldu öryggiskerfið sérstaklega að þörfum sjóeldisfyrirtækja. Í verkefninu felst aðlögun Öldunnar að aðstæðum sjóeldis ásamt tengingum við öryggismál starfsmanna, björgunaræfinga og öryggisbúnað báta Arnarlax.

Alda nýrra tækifæra - með StartUp SuperNova

Alda nýrra tækifæra - með StartUp SuperNova

Við hjá Öldu Öryggi erum afar stolt af því að vera eitt af 10 teymum valin til þátttöku í viðskiptahraðlinum StartUp SuperNova. Þetta öfluga frumkvöðlaprógram er samstarfsverkefni Nova, KLAK og fleiri lykilaðila í íslensku nýsköpunarumhverfi og hefur á undanförnum árum reynst frábær stökkpallur fyrir frumkvöðlafyrirtæki.

Öldu-teymið sigldi inn í SuperClass hjá StartUp SuperNova

Öldu-teymið sigldi inn í SuperClass hjá StartUp SuperNova

Alda Öryggi tók nýverið þátt í SuperClass, vinnustofu á vegum StartUp SuperNova sem ætlað er frumkvöðlateymum með nýsköpunarhugmynd og vilja þróa þær áfram með markvissum hætti.

Eskja stígur Ölduna í öryggismálum sjómanna

Eskja stígur Ölduna í öryggismálum sjómanna

Eskja stígur nú Ölduna í öryggismálum sjómanna um borð í uppsjávarskipunum Aðalsteini Jónssyni og Jóni Kjartanssyni.

Útvarpsviðtal um Ögguna - frítt öryggisapp fyrir smábátasjómenn

Útvarpsviðtal um Ögguna - frítt öryggisapp fyrir smábátasjómenn

Bylgjan var með skemmtilega umfjöllun um Ögguna í Bítinu fyrr í vikunni

Tómas Þorvaldsson stígur Ölduna í öryggismálum sjómanna.

Tómas Þorvaldsson stígur Ölduna í öryggismálum sjómanna.

Aldan rís nú með frystitogaranum Tómas Þorvaldsson hjá Útgerðarfélagi Grindavíkur.

Alda tekur þátt í Nýsköpunarviku

Alda tekur þátt í Nýsköpunarviku

Alda Öryggi tók virkan þátt í Nýsköpunarviku sem haldin var í síðustu viku og sótti fjölda áhugaverðra fyrirlestra.

Alda vekur athygli erlendis

Alda vekur athygli erlendis

Nýsköpun Öldunnar í öryggismálum sjómanna á Islandi vekur athygli erlendis hjá Maritime Innovation upplýsingaheimasíðu um helstu nýsköpun í sjávarútvegi á alþjóðavísu.

Alda hlýtur Hvatningarverðlaun Samtaka fyrirtækja í Sjávarútvegi

Alda hlýtur Hvatningarverðlaun Samtaka fyrirtækja í Sjávarútvegi

Alda fékk hvatningarverðlaun Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi á ársfundi 4 apríl síðast liðinn.

Aggan - smáforrit sem tryggir öryggi sjómanna

Aggan - smáforrit sem tryggir öryggi sjómanna

Smáforritið Agga, á vegum nýsköpunarfyrirtækisins Alda Öryggi, býðst íslenskum smábátasjómönnum þeim að kostnaðarlausu.

Öldu-gangur í öryggismálum sjómanna hjá Brim

Öldu-gangur í öryggismálum sjómanna hjá Brim

Það er búið að vera mikill Öldu-gangur í öryggismálum sjómanna hjá Brim Í mars hafa 3 skip Sólborg RE 27, Helga María RE 3 og Viðey RE 50, öll innleitt Öldu öryggisstjórnunarkerfið um borð hjá sér.

Arnarlax og Aldan hefja þróunarsamstarf

Arnarlax og Aldan hefja þróunarsamstarf

Fiskeldisfyrirtækið Arnarlax og nýsköpunarfyrirtækið Alda Öryggi hafa gengið til formlegs samstarfs um að innleiða Öldu öryggisstjórnunarkerfið um borð í alla þjónustubáta og fóðurpramma Arnarlax.

Björgunaræfingar á frívaktinni

Björgunaræfingar á frívaktinni

Öryggi sjómanna skiptir sköpum og það vita þeir vel um borð í Páli Jónssyni VE hjá Vísir ehf. Þar er öryggisvitund áhafnarinnar í fyrirrúmi, og björgunaræfingar fastur liður í starfseminni um borð – jafnvel á frívaktinni.

Aldan tilnefnd til nýsköpunarverðlauna

Aldan tilnefnd til nýsköpunarverðlauna

Alda hlaut tilnefningu og viðurkenningu til nýsköpunarverðlauna „Svifaldan“ á Sjávarútvegsráðstefnunni í síðustu viku.

Áhöfnin um borð í Bergi hjá Bergur-Huginn stíga Ölduna

Áhöfnin um borð í Bergi hjá Bergur-Huginn stíga Ölduna

Áhöfnin um borð í Bergi hjá Bergur-Huginn ehf er byrjaður að stiga Ölduna í öryggismálum sjómanna eftir vel heppnaðan öryggisfund með fulltrúa Öldunnar og Palla Öryggisstjóra hjá Síldarvinnslunni hf.

Hoffell og Ljósafell héldu eldvarnaæfingu með slökkviliðinu

Hoffell og Ljósafell héldu eldvarnaæfingu með slökkviliðinu

Í byrjun október héldu áhafnir Hoffells og Ljósafells hjá Loðnuvinnslunni, eldvarnaæfingu með slökkviliði Fjarðabyggðar.

Loðnuvinnslan og Aldan fara á sjó

Loðnuvinnslan og Aldan fara á sjó

Á íslensku sjávarútvegssýningunni skrifaði Garðar Svavarsson framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar undir samning við Ölduna um innleiðingu á öryggisstjórnunarkerfinu um borð í skipum fyrirtækisins.

Alda verður á íslensku sjávarútvegssýningunni

Alda verður á íslensku sjávarútvegssýningunni

Við í Öldunni verðum á bás P-38 á íslensku sjávarútvegssýningunni. Hvetjum alla til að kíkja í kaffi til og fræðast um hvernig við erum að nútímavæða öryggismál til sjós í samvinnu við íslenska sjómenn og sjávarútveg!

Vinnslustöðin bætist í hópinn

Vinnslustöðin bætist í hópinn

Vinnslustöðin bætist í hóp 10 útgerða sem nota Öldu öryggisstjórnunarkerfið fyrir fiskiskip. Erum gríðar þakklátir Vinnslustöðinni sem í fyrra reyndist okkur dýrmætur bakjarl í þróunarferli Öldunnar!

Aldan er nú farin á sjó með Akurey hjá Brim

Aldan er nú farin á sjó með Akurey hjá Brim

Aldan er nú farin á sjó með Akurey hjá Brim. Óhætt er að segja að áhafnarmeðlimir voru spenntir fyrir að nota Ölduna til að nútímavæða öryggisstjórnun til sjós!

Nútímavæðing öryggismála til sjós

Nútímavæðing öryggismála til sjós

Öldu teymið er stolt af því að nútímavæða öryggismál til sjós í samvinnu með Vinnslustöðinni og sjómönnum þeirra!

Bókaðu kynningu