Samvinna, þakklæti og stolt 2025 – Gleðilegt nýtt ár

Við í Ölduteyminu óskum öllum gleðilegs árs og hlökkum til spennandi árs með fullt af nýjum ævintýrum þar sem Aldan mun halda áfram að rísa á íslenskum miðum og öðrum hafsvæðum. Við viljum sérstaklega þakka sjómönnum, útgerðum og öðrum samstarfsaðilum í að efla öryggismál sjómanna með nýsköpun og þjónustu Öldunnar.
Árið 2025 hefur verið mjög viðburðaríkt, mikill Öldu-gangur, ný þróunarsamstörf mynduð með útgerðum, sjóeldisfyrirtækjum, Slysavarnaskóla sjómanna og þátttöku í viðskiptahraðli Startup SuperNova, KLAK, NOVA og Huawai. Í vor fékk Alda hvatningarverðlaun SFS og í haust hófst svo formleg útrás Öldunnar á ný hafsvæði.
Það eru gríðarlega mikil tækifæri og spennandi tímar fram undan á nýju ári hjá Öldunni með auknum þróunarsamstörfum í samvinnu við sjómenn, útgerðir og samstarfsaðila bæði á Íslandi og erlendis.
Strax í byrjun næsta árs munu fleiri útgerðir og aðilar í sjótengdri starfsemi hefja innleiðingu og nýta sér þjónustu Öldunnar um borð í skipaflota sínum. Ásamt því mun Alda halda áfram að rísa á erlendum mörkuðum. Allt með það að markmiði að stuðla að nútímavæðingu öryggismála sjómanna sem byggir á áratuga reynslu og árangri íslensks sjávarútvegs undir leiðandi forystu Slysavarnaskóla sjómanna, skipstjóra og útgerða.
Að lokum viljum formlega þakka okkar helstu samstarfs- og styrktaraðilum fyrir ómetanlegan stuðning við þróun og framrás Öldunnar, Vísir, SVN, Brim, Skinney-Þinganes, Gjögur, Vinnslustöðin,Samherji, Grindavik-Seafood ásamt sjóeldis fyrirtækjunum Arnarlax og Kaldvík. Þökkum líka hinum ýmsum hagaðilum Samgöngustofu, Siglingaráði, SFS, Félagi skipstjórnarmanna, Sjómannasamband Íslands, Landssambandi smábáteiganda og Slysavarnaskóla sjómanna.
Áramótakveðja,
Ölduteymið




