Aldan mikilvægur þáttur í bættri öryggismenningu á sjó

Pálmi Gauti Hjörleifsson, skipstjóri á Kaldbak EA hjá Samherja, fór yfir öryggismál til sjós nýlega í áhugaverðu viðtali. Hann nefnir þar sérstaklega að skipulögð öryggisstjórnun hafi verið mikil lyftistöng fyrir greinina, og ýmis verkfæri hafi bæst við um borð og í landi - þar á meðal Öldu-appið, sem veiti bæði áhöfnum og útgerðum aukið aðhald.
Pálmi Gauti fór yfir rúmlega 30 ára feril sinn til sjós í viðtali sínu við Fiskifréttir og sagði þar öryggishugsun sjómanna hafa gjörbreyst á þessum tíma, og að öryggi um borð hafi batnað gríðarlega á síðustu árum. „Það hafa verið tekin mörg skref í öryggismálum í gegnum tíðina og þau hafa öll verið í mjög jákvæða átt,“ segir Pálmi Gauti.
Við hjá Öldu erum afar stolt af því að eiga hlutdeild í þessari jákvæðu þróun. Pálmi Gauti er einn reyndasti skipstjóri Samherja og varaformaður stjórnar Félags skipstjórnarmanna, og það er okkur mikils virði að heyra frá svo reynslumiklum skipstjórnanda að stafræn verkfæri á borð við Öldu-appið skipti miklu máli úti á sjó - og létti bæði áhöfnum og útgerðum lífið í öryggismálum.
Saga Pálma Gauta er góð áminning um hversu langt öryggismenning sjómanna hefur náð á undanförnum áratugum, og er okkur um leið hvatning til að halda áfram að þróa þau tæki og verkfæri sem gera áhöfnum kleift að vinna af öryggi - svo allir komi heilir heim.
https://fiskifrettir.vb.is/thad-koma-moment-thegar-allt-gengur-upp/
