Faxaflóahafnir og Alda í samstarf um öruggari og snjallari hafnir

Alda Öryggi og Faxaflóahafnir hafa undirritað þjónustu- og þróunarsamning um notkun og aðlögun Öldu fyrir þjónustubáta Faxaflóahafna. Samningurinn styður við áherslur Faxaflóahafna á öruggan og skilvirkan rekstur og þróun snjallra hafna framtíðarinnar.
Samningurinn var undirritaður á sjávarútvegssýningunni IceFish í vikunni, og með honum verður Alda í fyrsta sinn tekin í notkun fyrir þjónustubáta hafnarfyrirtækis.
„Öryggi er grundvallaratriði í allri starfsemi Faxaflóahafna. Við viljum hafa skýrt og aðgengilegt yfirlit yfir öryggismálin um borð og nota kerfi sem nýtist áhöfnunum í daglegu starfi,“ segir Jón Þórir Sveinsson, öryggisstjóri Faxaflóahafna. „Möguleikinn á að halda utan um lögbundnar æfingar, áhættumat og önnur öryggisverkefni á einum stað styrkir yfirsýn og eftirfylgni og vó þungt við val okkar á Öldu.“
Þjónustusamningurinn tekur til notkunar Faxaflóahafna á kerfinu en samhliða hafa aðilar gert þróunarsamning um aðlögun Öldu að starfsemi hafna. Þróunin mun taka mið af reynslu þeirra sem sinna öryggismálum og daglegum rekstri þjónustubáta Faxaflóahafna. Samstarfið fellur vel að áherslu Faxaflóahafna á að þróast í takt við þarfir samfélagsins og atvinnulífsins og nýta stafrænar lausnir til að bæta öryggi, yfirsýn og skilvirkni.
„Samstarfið við Faxaflóahafnir markar nýtt skref í þróun Öldu,“ segir Gísli Níls Einarsson, framkvæmdastjóri Öldu Öryggis. „Við erum þakklát fyrir traustið og hlökkum til að þróa kerfið áfram í samstarfi við Faxaflóahafnir og aðlaga það að starfsemi þjónustubáta og hafna. Sú þekking og reynsla sem verður til í samstarfinu mun jafnframt nýtast við frekari þróun lausnarinnar fyrir hafnir.“

