Áhöfnin um borð í Bergi hjá Bergur-Huginn stíga Ölduna

Áhöfnin um borð í Bergi hjá Bergur-Huginn ehf er byrjaður að stiga Ölduna í öryggismálum sjómanna eftir vel heppnaðan öryggisfund með fulltrúa Öldunnar og Palla Öryggisstjóra hjá Síldarvinnslunni hf. Áhafnarmeðilimir voru mjög áhugasamir um Öldu-appið og Jonni skipstjóri þakkaði kærlega fyrir sig í lok fundarins. Að lokum veifaði áhöfnin okkur áður en þeir lögðu af stað á miðin frá Norðfirði með Ölduna í snjalltækjum sínum!


