Til baka í fréttir

Alda tekur þátt í Nýsköpunarviku

Alda tekur þátt í Nýsköpunarviku

Alda Öryggi tók virkan þátt í Nýsköpunarviku sem haldin var í síðustu viku og sótti fjölda áhugaverðra fyrirlestra. Einnig gafst tækifæri til að ræða við fjölmarga viðskiptafulltrúa utanríkisþjónustunnarí ýmsum löndum á viðburði á vegum Íslandsstofu, og Nova hélt ótrúlega skemmtilegan viðburð sem nefndist Klúðurkvöld þar sem fjórir frumkvöðlar sögðu frá mistökum og hvernig þau lærðu af þeim. 

Virkilega skemmtilegt er að vera hluti af fjölbreyttu og skapandi samfélagi frumkvöðla og hugmyndaríkra einstaklinga og þátttakan veitir afar gott tækifæri til að efla tengslanetið og deila reynslu með öðrum frumkvöðlum.Þátttaka í Nýsköpunarviku 2025 styrkir enn frekar stöðu Öldu Öryggis sem leiðandi nýsköpunarfyrirtækis á sínu sviði og við hlökkum til áframhaldandi þátttöku á nýsköpunarsviðinu á Íslandi.

Bókaðu kynningu