Til baka í fréttir

Innleiðing Öldu hafin um borð í björgunarskipinu Jóhannesi Briem

Innleiðing Öldu hafin um borð í björgunarskipinu Jóhannesi Briem

Innleiðing Öldu öryggisstjórnunarkerfis er nú hafin á björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og fyrsta skipið sem fær Öldu er Jóhannes Briem, björgunarskipið í Reykjavík. Þar með er hafið það verkefni að taka Ölduna í notkun í öllum björgunarskipum félagsins á næstu misserum.

Innleiðingin er liður í formlegu þróunarsamstarfi Öldu Öryggis og Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem kynnt var fyrr á árinu. Markmið samstarfsins er að aðlaga og þróa Ölduna sérstaklega fyrir starfsemi björgunarskipa Landsbjargar og styrkja þannig enn frekar samræmda öryggisstjórnun í björgunarstarfi félagsins á sjó.

Með innleiðingunni verður öryggisstjórnunarkerfi Öldunnar mikilvægur hluti af starfsemi björgunarskipa Slysavarnarfélagsins Landsbjargar með það að markmiði að einfalda yfirsýn, samræma æfingar og styðja við áframhaldandi faglega forystu Íslands í öryggismálum sjómanna.

Við hjá Öldu Öryggi erum afar stolt af samstarfinu við Slysavarnafélagið Landsbjörg og hlökkum til að ljúka við að innleiða öryggisstjórnunarkerfið okkar í öll björgunarskip félagsins á næstunni.

**

Á myndinni hér að neðan er björgunarskipið Jóhannes Briem, en á myndinni efst eru Gísli Níls Einarsson framkvæmdastjóri Öldu Öryggis og Þorsteinn Jónas Sigurbjörnsson og Örn Smárason hjá Landsbjörgu

Bókaðu kynningu