Til baka í fréttir

Öryggi sjómanna í brennidepli í Færeyjum

Öryggi sjómanna í brennidepli í Færeyjum

Við hjá Öldunni tókum þátt í Atlantic Fair sjávarútvegssýningunni sem haldin var í Færeyjum á dögunum, þar sem við áttum afar góð og gagnleg samtöl við stjórnendur skipa og útgerða, sjómenn og fjölmarga hagsmunaaðila í sjávarútvegi.

Á sýningunni hittum við meðal annars fulltrúa frá P/F Varðin Pelagic, Sjónám fræðsluaðila og Sjóvinnustýrið – Faroese Maritime Authority, auk þess sem við áttum ánægjulegt samtal við Føroyska Sjómansmissiónin. Sameiginlegt áhugamál allra var öryggi sjómanna og mikilvægi góðrar fræðslu, verklags og stuðnings í greininni.

Atlantic Fair er mikilvægur vettvangur fyrir fyrirtæki og fagfólk í sjávarútvegi og var þátttakan bæði lærdómsrík og ánægjuleg fyrir okkur hjá Öldunni. Við þökkum Færeyingum innilega fyrir frábærar móttökur og hlökkum til næstu skrefa Öldunnar í Færeyjum.

Bókaðu kynningu