Til baka í fréttir

Björgunaræfingar á frívaktinni

Björgunaræfingar á frívaktinni

Öryggi sjómanna skiptir sköpum og það vita þeir vel um borð í Páli Jónssyni VE hjá Vísir ehf. Þar er öryggisvitund áhafnarinnar í fyrirrúmi, og björgunaræfingar fastur liður í starfseminni um borð – jafnvel á frívaktinni.Það er alltaf tími um borð hjá okkur til að taka björgunaræfingar, segir Jónas Ingi Sigurðsson, skipstjóri á Páli Jónssyni. Að hans sögn er markmiðið að gera öryggismál sjómanna að eðlilegum hluta vinnudagsins, þannig að allir um borð séu reiðubúnir ef einhvers konar neyð kemur upp.


Við hjá Öldunni viljum senda áhöfninni á Páli Jónssyni stórt hrós fyrir skipulag þeirra á björgunaræfingum um borð. Svona á að standa að öryggismálum sjómanna!

https://fiskifrettir.vb.is/thetta-var-svakalega-finn-fiskur/?fbclid=IwY2xjawIV2_VleHRuA2FlbQIxMQABHasfi9QDAoHbV1LCyx5N1bXP2DXGd9gyTAqc9IjV0pFCFvsbT2kq8aS4Uw_aem_M0K1qN9_0ZcFyHBUab_VRg

Bókaðu kynningu