Norðursigling stígur Ölduna fyrst hvalaskoðunarfyrirtækja - Spennandi áfangi í öryggismálum hvalaskoðunar á Íslandi

Við hjá Öldunni erum afar stolt af því að Norðursigling er fyrsta hvalaskoðunarfyrirtækið á Íslandi til að innleiða Öldu öryggisstjórnunarkerfið. Þetta markar tímamót í öryggismálum hvalaskoðunar, þar sem við stígum saman mikilvægt skref í að færa þann sama aga, gagnadrifnu nálgun og fagmennsku sem hefur verið þróuð með og notuð af stærstu útgerðum landsins - yfir á farþegaskip í hvalaskoðun.
Með innleiðingunni hefst jafnframt markvisst þróunarsamstarf við Norðursiglingu, þar sem kerfið verður sérsniðið að aðstæðum hvalaskoðunar sem einkennist af minni skipum, fjölbreyttum áhafnahópum, ferðaþjónustu og síbreytilegum aðstæðum á sjó. Sú vinna fer fram í nánu samstarfi við skipstjóra og áhafnir Norðursiglingar, á sama hátt og Aldan hefur frá upphafi verið mótuð í nánu samstarfi við íslenska sjómenn.
Þetta er einnig stór áfangi fyrir Ölduna sjálfa. Með verkefninu förum við inn á nýjan vettvang - utan hefðbundinna fiskveiða - og í annars konar skip sem hafa á sumum sviðum aðrar þarfir m.t.t. öryggisstjórnunar. Þetta skiptir miklu fyrir áframhaldandi þróun kerfisins og opnar leiðir fyrir fleiri fyrirtæki í ferðaþjónustu og farþegaflutningum sem vilja efla öryggi, velferð starfsfólks og fagmennsku í rekstri.
Við hlökkum til að þróa kerfið áfram í samstarfi við Norðursiglingu og styðja við enn öruggari, faglegri og skilvirkari starfsemi í hvalaskoðun á Íslandi.
Takk kærlega fyrir traustið – við erum spennt fyrir komandi tímum!
**
Á myndinni takast Berta María Hreinsdóttir, rekstrarstjóri Norðursiglingar og Þórunn Harðardóttir, öryggissérfræðingur Öldunnar í hendur. Áhöfn Náttfara, Hörður Mar Jónsson og Már Eyfjörð Höskuldsson eru á leið í hvalaskoðun frá Húsavík.
