Til baka í fréttir

Nýr Ásgrímur Halldórsson kominn til Skinney-Þinganes

Nýr Ásgrímur Halldórsson kominn til Skinney-Þinganes

Við hjá Öldunni viljum óska Skinney-Þinganes og áhöfn Ásgríms Halldórssonar SF-250 innilega til hamingju með nýtt og glæsilegt skip, sem sigldi heim til Hafnar í Hornafirði fyrr í mánuðinum.

Ásgrímur Halldórsson er um 75 metra langt uppsjávarskip og búið nýjustu tækni til veiða og vinnslu. Skipið var nýverið afhent frá Karstensens skipasmíðastöðinni í Danmörku og er eitt fullkomnasta uppsjávarskip landsins. Í heimför var í brúnni Sigurður Ægir Brynjólfsson skipstjóri ásamt tíu manna áhöfn, og gekk ferðin til Íslands vel.

Öryggi áhafna er sífellt mikilvægari þáttur í nútímaútgerð og það er ánægjulegt að sjá fyrirtæki eins og Skinney-Þinganes leggja ríka áherslu á fagmennsku, skipulag og stöðugar umbætur í öryggisstjórnun til sjós. Þar hefur Aldan fengið að taka þátt í vegferðinni með fyrirtækinu og styðja við öflugt öryggis- og gæðastarf sem snýr að daglegum rekstri og velferð sjómanna.

Við hjá Öldunni erum stolt af því að fá að vera hluti af þeirri vegferð og hlökkum til áframhaldandi samstarfs við Skinney-Þinganes og áhafnir á Ásgrími og öðrum skipum.

Við óskum Skinney-Þinganesi, áhöfninni og öllum sem komu að verkefninu innilega til hamingju með nýja skipið og óskum þeim farsældar og góðs gengis við veiðarnar.

Bókaðu kynningu