Til baka í fréttir

Aldan á vel heppnuðu opnu húsi Sjávarklasans

Aldan á vel heppnuðu opnu húsi Sjávarklasans

Alda Öryggi tók þátt í opnu húsi Sjávarklasans sem haldið var í húsnæði klasans við Grandagarð í síðustu viku. Viðburðurinn, sem var hluti af nýsköpunarvikunni, var afar vel sóttur og skapaðist lífleg stemning þar sem fjölbreytt fyrirtæki kynntu starfsemi sína og nýsköpun í sjávarútvegi og tengdum greinum.

Við vorum með kynningarbás þar sem gestir gátu kynnt sér lausnir okkar á sviði öryggisstjórnunar til sjós. Fjölmargir áhugasamir litu við, áttu samtöl við teymið okkar og fengu innsýn í hvernig við styðjum við aukið öryggi sjómanna.

Við þökkum öllum sem komu við hjá okkur fyrir spjallið og áhugann og hlökkum til áframhaldandi samtals og samstarfs.

Bókaðu kynningu