Til baka í fréttir

Frábær reynsla úr Startup SuperNova

Frábær reynsla úr Startup SuperNova

Við í Öldu-teyminu erum ótrúlega stolt og þakklát eftir að hafa lokið viðskiptahraðlinum Startup SuperNova. Þetta hefur verið einstakt tækifæri fyrir okkur að þróa áfram nýsköpun Öldunnar, vaxa sem frumkvöðlar og tengjast frábæru fólki úr íslenska nýsköpunargeiranum.

Hraðallinn gaf okkur dýrmæt verkfæri og hugmyndir um hvernig við munum halda áfram að byggja upp Ölduna fyrir alþjóðlegan og innlendan markað. Það eru spennandi tímar framundan hjá okkur í Öldunni og við hlökkum til að nýta það sem við höfum lært til að byggja enn öflugri Öldu í framtíðinni. Við viljum þakka einstöku starfsfólki Klak, fyrirlesurum, mentorum og ekki síst öllum hinum teymunum sem tóku þátt fyrir innblástur og ómetanlegan stuðning á þessari vegferð.

Bókaðu kynningu