Til baka í fréttir

Agga komin til Færeyja – fyrsta skrefið í alþjóðlegri vegferð

Agga komin til Færeyja – fyrsta skrefið í alþjóðlegri vegferð

Öryggisappið Agga, sem Alda Öryggi þróaði fyrir smábátasjómenn, hefur á skömmum tíma fest sig í sessi sem öflugt verkfæri fyrir íslenska smábátasjómenn. Appið hefur nú verið tekið í notkun í Færeyjum og á einungis 2 vikum hafa um 50% færeyskra smábátasjómanna hafið notkun á appinu.

Appið auðveldar sjómönnunum að halda utan um öryggismál í daglegum rekstri með einföldum, stafrænum hætti, og inniheldur meðal annars gátlista, hættumat, fræðsluefni og atvikaskráningu á einum stað.

Innleiðingin í Færeyjum markar mikilvæg tímamót fyrir Öldu Öryggi og sýnir að lausnin á erindi víðar en á Íslandi. Þrátt fyrir að aðstæður geti verið ólíkar eiga íslenskir og færeyskir smábátasjómenn margt sameiginlegt þegar kemur að öryggi á sjó og daglegum rekstri.

„Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá Ögguna nýtast nú einnig færeyskum sjómönnum. Markmið okkar hefur frá upphafi verið að gera öryggisstjórnun einfaldari og aðgengilegri fyrir smábátasjómenn og við erum afar ánægð að sjá lausnina vekja áhuga utan Íslands,“ segir Gísli Níls Einarsson, framkvæmdastjóri Öldu Öryggis.

Útrás Öggu til Færeyja er unnin í samstarfi við Sjónám (slysavarnaskóla sjómanna í Færeyjum), Sjóvinnustýrið (Siglingamálastofnun Færeyja), Meginfelag Útróðrarmanna (stærsta félag smábátasjómanna í Færeyjum) og Sprotin, færeyskt mál- og orðabókaforlag. Við hjá Öldu Öryggi þökkum þeim sem hafa komið að innleiðingu Öggu í Færeyjum kærlega fyrir traustið og hlökkum til áframhaldandi samstarfs um að efla öryggi smábátasjómanna.

Nánari upplýsingar er að finna á agga.is og aggasafety.fo

https://fiskifrettir.vb.is/50-faereyskra-smabatasjomanna-med-islenskt-oryggisapp/

Bókaðu kynningu