Til baka í fréttir

Aldan rís á nýju ári með Hafrannsóknastofnun

Aldan rís á nýju ári með Hafrannsóknastofnun

Við hjá Öldunni erum mjög stolt að byrja árið með öflugum nýjum viðskiptavini -  Hafrannsóknastofnun. Áður en rannsóknaskipið Árni Friðriksson hélt af stað í loðnuleit nú í byrjun vikunnar var haldin kynning á Öldunni fyrir alla áhafnarmeðlimi. Áhöfnin var mjög spennt fyrir Öldunni og mætti Eggert B. Guðmundsson forstjóri einnig um borð til að kynna sér nýjar áherslur á öryggismálin til sjós með Öldunni.

Hafró ætlar sér að vera leiðandi og til fyrirmyndar í öryggismálum til sjós og munu einnig koma sterk inn í þróunarsamstarf með Öldunni.

Stefán Eyfjörð Stefánsson, rekstrarstjóri eigna, hefur leitt þetta samstarf fyrir hönd Hafró og segir innleiðingu Öldunnar vera hluti af auknum áherslum Hafró á öryggismál sjómanna - og þau séu mjög spennt að vinna með Öldu-teyminu í þróun kerfisins, sem snýr að stafrænu áhættumati starfa um borð.

Aldan verður einnig innleidd um borð í rannsóknaskipinu Þórunni Þórðardóttur í næstu viku og eru skipstjórarnir Heimir og Guðmundur afar áhugasamir að hefja notkun í fyrstu ferðum ársins.

Við hlökkum mikið til samstarfsins við Hafró og erum stolt af því að styðja við þeirra metnaðarfullu markmið um að vera leiðandi í öryggismálum til sjós – bæði með innleiðingu Öldunnar og áframhaldandi þróun lausna sem efla öryggi áhafna um borð.

Bókaðu kynningu