Til baka í fréttir

Skipstjóri og áhöfn á Barða heiðruð á IceFish sýningunni

Skipstjóri og áhöfn á Barða heiðruð á IceFish sýningunni

Theodór Elvar Haraldsson, skipstjóri á Barða NK-120, hlaut á dögunum verðlaun sem framúrskarandi íslenskur skipstjóri á sjávarútvegs- og fiskeldissýningunni IceFish 2026. Viðurkenningin var jafnframt veitt allri áhöfn Barða fyrir viðbrögð hennar þegar sprenging varð í vélarrúmi skipsins og eldur braust út þann 12. Júní.  Áhöfnin brást þá hratt og fumlaust við og kom í veg fyrir að verr færi.

Theodór hefur sjálfur lagt áherslu á að atvikið hafi sýnt hve miklu máli þjálfun áhafnar í öryggismálum skiptir þegar á reynir.

„Við hjá Öldu Öryggi erum stolt af því að áhöfn Barða hafi notað Öldu við öryggisæfingar um borð. En þegar á reyndi var það áhöfnin sjálf sem þurfti að bregðast rétt við og heiðurinn er allur þeirra,“ segir Gísli Níls Einarsson, framkvæmdastjóri Öldu Öryggi.

Atvikið á Barða minnir okkur á að reglulegar æfingar og skýrir verkferlar eru það sem gerir áhöfnum kleift að bregðast rétt við þegar mest liggur við -csvo allir komi heilir heim. Við óskum Theodóri, allri áhöfn Barða og Síldarvinnslunni innilega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu.

https://svn.is/skipstjori-og-ahofn-a-barda-fa-verdlaun/

Bókaðu kynningu